19 11 2008

Ehemmm, orðið svolítið langt síðan ég skrifaði hér seinast. Við erum búin að fá niðurstöðu frá Viðlagasjóði. Það á semsagt að líma húsið saman, já bara svona eins og maður gerði við Legó í gamla daga þegar þeir vildu ekki hlýða manni þegar maður hafði byggt of hátt og ekki vandað sig hvernig maður setti kubbana saman. Nei kannski ekki alveg sambærilegt en þannig hljómaði þetta við fyrstu sýn. Þetta er semsagt epoxy líming sem á að vera sterkari en steinsteypa ef rétt er farið að. Þannig verður fyllt upp í sprungurnar sem eru í gegnum veggina hérna þvers og kruss en veggurinn inná baði er annað mál og svolítið flóknara. Þeir vilja að það verði brotið undan baðherbergisgólfinu og steyptar nýjar undirstöður undir gólfið. En málið er bara að það þarf þá að rífa vegginn niður á baðherberginu sem þýðir að baðherbergið verður ónothæft í smá tíma og húsið í raun bara opið út á haf. Þannig að það verður klósettlaust og kalt í húsinu og þannig er ekki hægt að búa í meira en einn-tvo daga. Það á þó líklega eftir að taka örlítið lengri tíma að gera við þetta, þannig að við þurfum að vera einhversstaðar annarsstaðar á meðan og það er ekki gert ráð fyrir því í kostnaðinum. Svo þyrfti auðvitað að skipta út lögnunum á baðherberginu því þær liggja við vegginn sem þarf að rífa og þá er dæmið farið að vinda upp á sig. Það sem við erum að gera núna er að reyna að sjá fyrst hvort þetta sé raunhæft og hvaða upphæð fer í þetta, vonandi þarf það ekki að kosta vesen og stapp því það er alveg agalega leiðinlegt að þreytandi að standa í svoleiðis.

En út í allt annað, við Hilmar Darri eigum afmæli í næstu viku, litla barnið á heimilinu er að verða 1 árs, að hugsa sér og ég sem er ekki deginum eldri en 20 ára….. Plús einhver örfá ár í viðbót en hey hver er að telja? Það er bara gert þegar maður er barn. Það stendur þó ekki til að gera neitt í tilefni míns afmælis frekar en hin árin en það er annað mál með Hilmar, þá verður eitthvað húllumhæ og kökur og svona gaman. Það verður allt auglýst síðar.

Núna ætla ég að fara að læra það eru svaka verkefnaskil núna þar sem það eru bara 2 vikur eftir af skólanum, ótrúlega fljótt að líða, maður er alveg á kafi núna, en sem betur fer er þetta skemmtilegt efni og eitthvað sem maður hefur áhuga á og kann eitthvað fyrir sér í þannig að þetta er nokkuð fljótunnið. Læt heyra í mér fljótlega.





Lítið að frétta

7 11 2008

Við erum ennþá að bíða eftir að fá að heyra frá Viðlagasjóði, þeir ætla greinilega að taka sér ár og aldir í að ákveða hvað á að gera með þetta hús. Ég þoli ekki svona bið, óvissa er eitthvað sem ég höndla ekkert allt of vel, ég er bókstaflega með hnút í maganum alla daga, sérstaklega þar sem núna er föstudagur og alveg augljóst að við fáum ekkert að heyra fyrr en í fyrsta lagi á mánudaginn. Óþolandi að þurfa að bíða yfir helgina, hefði verið miklu skemmtilegra að geta byrjað að plana hvað skal gera yfir helgina. Æi, óvissan er alveg að fara með mig, hehe.

Annars er allt hér við það sama. Strákarnir fara í skólann á hverjum degi og Hilmar Darri leikur sér, sefur og borðar bara eins og hann á að gera. Eina breytingin er líklega sú að skóladagurinn hjá Andra var styttur um 1 tíma, sem er svosem ágætt, þá kemur hann heim með Guðna Jóel. Þeir eru þarna nokkrir í bekknum sem eru svona eiturhressir og ekki alveg að höndla þennan seinasta tíma þannig að það var prufað að leyfa þeim að sleppa þeim allavega núna í mánuð og sjá hvort þeir ráði þá ekki betur við daginn en þetta er lengri skóladagur en var í fyrra. Þessi sami hressi hópur er líka byrjaður í verkefni sem heitir ART, á ensku: Aggression Replacement Training. Í þessu læra þau félagsfærni og reiðistjórnun svo dæmi sé tekið. Það er stuðst við dæmisögur og farið yfir það hvernig sé rétt að bregðast við hinum ýmsu aðstæðum, rosalega spennandi og skemmtilegt. Þeir sem vilja kannski kynna sér ART-ið eitthvað frekar geta gert það hér á síðu Skólaskrifstofu Suðurlands. Vonandi á þetta bara eftir að ganga vel fyrir sig.

Svo stendur til að halda afmæli um helgina, Andri og Guðni ætla að halda uppá afmælin sín, svaka veisla eins og alltaf. Verður gaman að sjá hversu miklir afgangar verða núna, ég baka alltaf svo mikið haha. En ég leysi það bara með því að bjóða stelpunum í heimsókn á mánudaginn.

Jæja, mér heyrist Sævar vera að koma heim, pústið hjá honum er farið þannig að maður heyrir í honum löngu áður en hann kemur. Maður þarf víst að fara að versla fyrir þetta partý hérna á sunnudaginn. Vonandi kem ég með fréttir af húsinu á mánudaginn, þetta er orðið ágætt af bið.





Þemaverkefnið

2 11 2008

Ætlaði bara rétt að láta vita af því að við Dísa erum farnar af stað með þetta skemmtilega verkfni okkar. Erum búnar að pósta 2 lögum núna, semsagt 2 vikur komnar.

Fyrsta lagið sem við tókum var Money for nothing með Dire straits sem átti náttúrulega einstaklega vel við þar sem að Ísland var á barmi gjaldþrots þá.

Næsta lag var Help! með Bítlunum sem átti líka vel við þar sem fyrir viku síðan lágum við á fjórum fótum og grátbáðum alheim um aðstoð.

Næsta lag er í vinnslu, meira um það næsta föstudag.

Hérna er linkurinn inn á síðuna okkar sem við köllum Music Megalomaniac. Við ætlum að setja inná þetta hvern föstudag og ég set link á þetta hérna til hliðar. Þetta er rosalega skemmtilegt og krefjandi, eykur aðeins sköpunargáfuna og ekki veitir af, hehe.

Allavega, endilega fylgist með.





Guðni 6 ára

27 10 2008
6 ára strákur

6 ára strákur

Guðni Jóel, litli strákurinn minn, er 6 ára í dag, ekkert smá stór. Hann fékk þessi svaka tattoo í afmælisgjöf í dag frá ömmu sinni og afa í Stykkishólmi. Honum fannst þetta alveg “geðveikt nice tattú”(Hans eigin orð sko) þannig að hann skellti þeim á sig að sjálfsögðu.

Annars erum við bara búin að hafa það náðugt. Núna er vetrarfrí í skólanum hjá strákunum, þannig að þeir voru í fríi í dag og seinasta föstudag. Ekki verra að vera í fríi á afmælisdaginn sinn. Við bíðum og bíðum eftir að heyra meira í viðlagasjóði, ferlega óþægilegt að vita ekkert en svona er þetta víst. Annars erum við alveg viss um að förum að fá fréttir og vonandi bara mjög góðar fréttir. Við vöknuðum bæði í gærmorgun eftir að hafa verið að dreymt mikið. Sævari dreymdi að einhverjir voða lærðir menn væru að skoða hér og meta, spá og spöglera. Mig aftur á móti dreymdi skít og aftur skít og nóg af honum, þetta er auðvitað eins og allir vita fyrir alveg gífurlegum auðæfum, þannig að núna sit ég bara við símann og bíð eftir símtalinu. Held reyndar að það væri ekki vitlaust að kaupa sér lottómiða núna í vikunni, kannski eru milljónirnar mínar þar. En mér er svosem alveg sama hvaðan þær koma, bara að þær komi hehe, og þegar þær koma blessaðarnar, þá fara þær nú alveg pottþétt ekki í hlutabréf. Kannski ég fjárfesti frekar í helling af Prins Póló og selji það á okurverði þegar það selst upp hérna á klakanum. Það blasir nefnilega við okkur prins póló skortur, og það vita nú allir að við íslendingar getum ekki komist af án Prins Póló, það væri bara eins og ef að lifrapylsa hætti að vera til í búðum(gæti reyndar komist af án þess), og að við hættum að fá okkur svið(það væri afturámóti hræðilegt). Held það sé nú fátt annað sem sniðugt væri að fjárfesta í þessa dagana, nema kannski skuldunum sínum og losa sig sem fyrst við þær. Það er líklega það eina gáfulega, en Prins Pólóið væri samt góð fjárfesting, ég meina hver kaupir ekki Prins Póló…..





Vetur, brrrrr….

21 10 2008

Jæja þá er það staðfest, veturinn er kominn, það ætti svosem ekki að koma neinum á óvart þetta gerist einu sinni á ári en það gerir það samt. Og jafnvel þótt það sé engan vegin gúrkutíð í fjölmiðlum núna þá var búin til frétt um að það væri kominn vetur og að komnar væru biðraðir fyrir framan dekkjaverkstæðin. Það er líka eins gott því að þetta gæti farið fram hjá einhverjum kjánanum og sá hinn sami gæti álpast út í stuttermabol og bermúdabuxum, maður veit aldrei.

Það er eiginlega óhjákvæmanlegt að maður verður aðeins latari þegar það er svona kalt, ég er allavega ekki mikið fyrir langa göngutúra í frosti, kýs frekar að ferðast um í heitum bíl þegar það er svona kalt og stökkva út til að smella af nokkrum myndum þegar það á við. Þetta gerir það líka að verkum að maður er latari að taka myndir, allavega útivið.

Við Dísa vinkona sjáum fram á að þetta verði langur og leiðinlegur vetur en til að bæta úr því og gera veturinn kannski örlítið ef ekki bara heilmikið skemmtilegri þá ákváðum við að fara af stað með smá þemaverkefni og að sjálfsögðu svaka áskorun. Við ætlum semsagt að skiptast á að velja lög og taka sitthvora myndina sem passar við lagið. Svo setjum við þær inn á sameiginlega flickr síðu sem við bjuggum til. Þetta er vikuáskorun, við ætlum að setja inn myndirnar á föstudögum og taka okkur vikuna í að hugsa upp mynd. Það verður rosalega gaman að fara af stað með þetta, en það er von á fyrstu myndunum næsta föstudag. Ég tilkynni síðuna þá hérna, því það er ekkert inná henni núna.

Allir að fylgjast með, stay tuned for next episode….





Dómur fellur…..

14 10 2008

……á morgun. Eða vonandi allavega. Viðlagasjóðsmennirnir eru að koma á morgun og þá fáum við vonandi að vita hversu mikið skemmt húsið okkar er. Við erum að sjá margar nýjar sprungur núna þegar það er farið að hausta. Jarðvegurinn er líklega að setjast almennilega, sumarið var þurrt og núna þegar það rignir svona mikið þá sjatnar í jarðveginum sem fór á hreyfingu í skjálftanum og húsið “gliðnar”. Það eru allavega 2 stórar sprungur á grunninum sem ganga í gegnum vegginn alveg frá gólfi upp í loft, maður er svolítið hræddur við svoleiðis þar sem það er engin járnabinding í húsinu, svo eru einhverjar sprungur við gólfbitana. Og þá á ég eftir að nefna sprunguna í horninu inná baðherbergi sem hefur aðeins gustað í gegnum. Sú sprunga er nú samt orðið lítilræði miðað við þær þarna niðrí kjallara, nema kannski fyrir utan “klístrið” sem er fyrir aftan klósett viðbygginguna. Klístrið er semsagt svaka sementsköggull sem fyrri eigandi klístraði á vegginn í þeirri trú um að hún væri að múra….. Þetta múrverk hennar er núna farið að losna dáldið af og er farið að halla aftur og Sævar er orðinn eitthvað hræddur um að þetta sé að detta af og er ekki viss um hvað þetta tekur með sér. Semsagt núna fer að koma að því að við getum farið að gera við og sjálfboðaliðar í það verk eru velkomnir hvenær sem er, gæri meira að segja að ég baki skúffuköku fyrir viðkomandi líka, díll sem ekki er hægt að segja nei við, haha.

Kem með meiri fréttir eftir heimsóknina.





Nýtt upphaf

12 10 2008

Þá er maður fluttur á nýja bloggsvæðið og um að gera að byrja bara strax að láta gamminn geysa. Eins og ég sagði á blogspotinu þá var ég ekki alveg að finna mig þar, fannst leiðinlegt hvernig vefumsjónarborðið var og svoleiðis. Það er nú nefnilega þannig að þótt að ég sé kannski voðalega flókin manneskja vil ég hafa hlutina frekar einfalda og skýra fyrir framan mig, eða var það öfugt.

Þegar ég var að pikka inn hérna linka á síður vina komst ég að því að vinir mínir eru frekar lélegir bloggarar, margir hverjir hafa ekki pikkað inn línur í meira en ár og sumir lengur, ég held að hún Emma mín hafi nú átt metið, ekkert heyrst síðan sumarið 2006, en sem betur fer heyrir maður nú í þessu liði símleiðis.Væri gaman ef einhverjir eru að skrifa eitthvað að senda mér link, gaman að fylgjast með og lesa þvaður og pælingar frá fólkinu sínu.

Annars er lítið að frétta af okkar daglega lífi, fórum upp í bústað seinustu helgi og áttum þar voðalega notalega helgi. Það hafði snjóað svolítið nóttina áður en við komum og á laugardeginum bjuggu strákarnir til þennan myndarlega snjókarl sem er líklegast með fyrstu snjókörlum þessa vetrar.








Follow

Get every new post delivered to your Inbox.